Það voru þrír dómar í dag - Úrskurður í máli NBI gegn Þráni staðfestur

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 16.6.2010.  Efnisflokkur:  Gengislánadómar

Athygli fólks hefur í dag verið á bílalánadómunum tveimur sem féllu í Hæstarétti, en ennþá stærri dómur féll líka í dag.  Það var í máli NBI gegn Þráni ehf., þar sem NBI krafist gjaldþrotaskipta á Þráni ehf.  Héraðsdómur hafnaði í úrskurði sínum 30. apríl sl. beiðni NBI og hélt ég að þeim úrskurði hefði ekki verið áfrýjað, enda komu upplýsingar um slíkt ekki fram á vefi Hæstaréttar.

Read more

Ekkert sem kemur á óvart - Bankarnir verða að vinna með viðskiptavinum sínum

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 15.6.2010.  Efnisflokkur:  Staða almennings

Opinberir aðilar hér á landi hafa forðast, eins og hægt er, að viðurkenna þær staðreyndir sem koma fram í þjóðhagsspá Hagstofunnar.  Síðast opinberaði forsætisráðherra afneitun sína í ræðu á Alþingi í umræðu um skuldavanda heimilanna.  En það er sama hvað stjórnvöld gera, þau geta ekki vikið sér undan þeirri staðreynd að ástandið fer stigversnandi hjá einstaklingum, heimilum, fyrirtækjum og sveitarfélögum í landinu.

Read more

Eygló á hrós skilið fyrir þrautseigjuna

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 15.6.2010.  Efnisflokkur:  Verðtrygging

Ég verð að taka hattinn ofan fyrir Eygló Harðardóttur í þessu máli.  Fyrst fékk hún því framgengt að haldinn var opinn fundur í viðskiptanefnd um verðtrygginguna og efnahags- og viðskiptaráðherra var fenginn til að láta útbúa skýrslu um málið.  Núna er komin þverpólitísk nefnd sem fjalla á um kosti þess og galla að draga úr vægi verðtryggingar. 

Read more

Seðlabankinn leggur mikið undir að gömlu bankarnir falli ekki aftur. Kostnaður við tæknilegt gjaldþrot Seðlabankans 551 þ.kr. á hvern Íslending.

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 10.6.2010.  Efnisflokkur:  Nýir bankar, Bankahrun, Seðlabankinn

Ég hélt þegar ég byrjaði að rita þessa færslu að fjármálaráðherra hefði aðeins svarað einni krassandi fyrirspurn á Alþingi í gær (9. júní).  Þær voru tvær.

Fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur

Í skriflegu svari fjármálaráðherra, Steingríms J. Sigfússonar, við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur sem birt var á vef Alþingis í dag má lesa ýmislegt fróðlegt.

Read more

Blekkingar stjórnvalda - Ríkisstjórn bráðabirgðaaðgerðanna

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 10.6.2010.  Efnisflokkur:  Umræðan

Með ólíkindum er stundum að hlusta á stjórnarliða og þá sérstaklega samfylkingarfólk berjast gegn því að viðurkenna vanda heimilanna.  Ég hef skrifað um skuldavanda heimilanna og fyrirtækja í á þriðja ár og setið í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna frá byrjun.  Í skrifum mínum og störfum fyrir samtökin hef ég ítrekað bent á ýmsar tölulegar staðreyndir um stöðu heimilanna.  Nær undantekningarlaust hafa þessar tölur reynst réttar.  Hagsmunasamtök heimilanna hafa aftur og aftur varað við þróun mála.

Read more

Tek undir með Magnúsi Orra og vil ganga lengra í skattkerfisbreytingum - Þeir efnameiri eiga að vera stoltir af skattgreiðslum til íslenska ríkisins

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 10.6.2010.  Efnisflokkur:  Skattamál

Fólk þarf ekki að lesa margar færslur hjá mér hér á blogginu til að sjá, að ég hrósa þingmönnum Samfylkingarinnar ekki oft, enda finnst mér flokkurinn vera ákaflega spar á hugmyndir sem virkilega verja hagsmuni heimilanna.  Ég hef varað við því og eins stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna, byggja ætti upp nýja bankanna á eignum og tekjum heimilanna.

Read more

Þetta heitir að byrja á öfugum enda

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 8.6.2010.  Efnisflokkur:  Stjórnvöld

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, á sér hliðar vekja sífellt furðu mína.  Hér er eitt atriði.  Opinberir starfsmenn eiga að sætta sig við launafrystingu til ársloka 2014.

Ég hélt að væri einhver maður með púlsinn á ástandinu í þjóðfélaginu, þá væri það Árni Páll.  Hefur hann ekki séð vanda heimilanna?  Fattar hann ekki hvað þessi vandi er umfangsmikill?  Ég segi að hann ætti að vita betur.

Read more

Ekki öll gagnaver þurfa ríkisstyrk - Miðgarður byggir upp gagnaver í Vogum

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 7.6.2010.  Efnisflokkur:  Tölvur og tækni

Ég verð að viðurkenna, að mér finnst það ekki bera vott um mikinn vilja eigenda Verne Holding til að taka þátt í uppbyggingu atvinnulífs í landinu, að það þurfi að vera í skjóli sérstakrar fyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins.  Satt best að segja, þá furða ég mig á því.  Það er flott hugmynd að koma upp þessu gagnaveri, en af hverju þarf ríkisstyrk?

Read more

Umræða um persónukjör á villigötum

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 4.6.2010.  Efnisflokkur:  Umræðan, Stjórnmál

Ég verð að taka undir með Þór Saari, að þessi umræða um persónukjör er komin út í algjöra vitleysu. Snýst þetta virkilega um kynjamál, en ekki lýðræði.  Það er minn lýðræðislegi réttur í dag að stroka út alla karla eða allar konur af þeim lista sem ég kýs.  Ekki eru nein lög sem banna það.  Af hverju halda femínistar að persónukjör verði konum óhagstætt?

Read more

Af hverju má ekki bara segja: Já, Samfylkingin beið afhroð.

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 30.5.2010.  Efnisflokkur:  Stjórnmál

Það er eitt sem er dagljóst með úrslit kosninga:  Formenn stjórnmálaflokka viðurkenna aldrei tap.  Í kvöld var Jóhanna Sigurðardóttir í sjónvarpssal og í hvert sinn sem hún komst nálægt því að viðurkenna tap Samfylkingarinnar, þá tengdi hún það alltaf við "fjórflokkinn".  Samt er það þannig, að Samfylkingin tapar miklu fylgi í fjórum stærstu sveitarfélögum landins, þ.e. Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri

Read more

Skýlaus krafa að heimilin njóti alls afsláttarins

Ég vil byrja á því að þakka Breka Karlssyni fyrir að vekja athygli á þessari vitleysu.

Samkvæmt gögnum Seðlabankans, sem Breki vísar í, voru yfirdráttarlán í íslenskum krónu 251,5 milljarðar kr. í september 2008, en stóðu í 129,7 milljörðum þremur mánuðum síðar.  Hlutur heimilanna var um þriðjungur af þessari tölu, þ.e. var í september 2008 78,3 milljarðar og hafði lækkað í 46,7 milljarða í desember sama ár sem er lækkun upp á 40,4%…

Read more

Niðurstaða ESA kemur ekki á óvart

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 26.5.2010.  Efnisflokkur:  Icesave

Ef þessi niðurstaða ESA er að koma einhverjum á óvart, þá hefur sá hinn sami ekki fylgst mikið með Icesave umræðunni.  Eins og ég skil Icesave samningana, þá hefur Ísland alltaf viðurkennt að það þurfi að greiða lágmarkstrygginguna.  Deilan hefur ekki snúið um það.  Hún hefur snúið um hvernig endurgreiðsla frá Landsbankanum fari fram, þ.e. hvort fyrst skal greiða inn á skuldbindingu íslenska tryggingasjóðsins..

Read more

Smákökubakstur og skriftir á vefsvæðum

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 26.5.2010.  Efnisflokkur:  Upplýsingaöryggi, netöryggi og persónuvernd

Ég get ekki annað en furða mig á öllum þeim smákökum (cookies) sem ætlast er til að maður baki á ferð um veraldarvefinn.  Varla er hægt að opna eina einustu síðu án þess að beðið er um skrifa smáköku niður á tölvu hjá manni eða óskað er eftir að smákaka sé send út.  Ég verð að viðurkenna, að ég skil ekki þessa hnýsni sem í þessu felst.  Til hvers þarf einhver vefþjónn að vita að ein eða önnur mynd hafi verið birt í vafra úti í bæ frekar en á Akureyri

Read more

SP-fjármögnun krafsar í bakkann

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 26.5.2010.  Efnisflokkur:  Skuldaúrræði

Hún er furðuleg sú ályktun blaðamanns að SP-fjármögnun hafi riðið á vaðið.  Fyrirtækið stendur frammi fyrir tveimur niðurstöðum Héraðsdóms Reykjavíkur.  Annarri frá því 12. febrúar, þar sem Áslaug Björgvinsdóttir settur héraðsdómari úrskurðar að gengistrygging sé ólögleg, og hinni frá 30. apríl, þar sem Jón Finnbjörnsson héraðsdómari úrskurðar að ekki sé gengistryggingin bara ólögleg heldur skuli engin önnur verðtrygging koma í staðinn, en lánasamningurinn skuli að öðru leyti standa.

Read more