Sérkennilega staða er komin upp. Umboðsmaður Alþingis og talmaður neytenda hafa sent Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlit erindi um stjórnvaldsákvarðanir stofnanna til fjármálafyrirtækja um að nota vexti Seðlabankans í stað samningsvaxta á gengistryggð lán. Umboðsmaður Alþingis segir nánast beint að SÍ og FME skortir lagastoð til að gefa út tilmælin, meðan talsmaður neytenda gengur lengra og segir það undanbragðalaust…
Read moreVerði þetta að veruleika, þarf að setja tímabundið þak á innlánasöfnun bankanna
Fyrir Alþingi liggur frumvarp, þar sem lagt er til að innstæður verði varðar upp að EUR 100.000. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að greiðslur fari fram að hámarki 20 dögum eftir að Fjármálaeftirlitið hefur úrskurðað að innlánsstofnun hafi verið tekin til slitameðferðar…
Read moreMistök embættismanna og ráðherra kosta skattgreiðendur hugsanlega 100 milljarða - Lán heimilanna eru ekki ástæðan
Það er gott að menn kunni að reikna. Vandamálið er að það er ári of seint. Í febrúar í fyrra var fyrst byrjað að vekja athygli á því á opinberum vettvangi að gengistrygging væri hugsanlega ólöglegt form verðtryggingar…
Read moreOrðaleikir Steingríms J og Landsbankans
Mér finnst þeir vera með ólíkindum orðaleikir stjórnvalda og Landsbankans varðandi verðmæti og afslætti á lánasöfnum. Nú er tími til kominn að menn hætti þessari vitleysu og fari rétt með tölur…
Read moreTillögur Hagsmunasamtaka heimilanna taka á þessu öllu
Mig langar að vekja athygli á því að Hagsmunasamtök heimilanna sendu út fyrir nærri hálfum mánuði tillögur að uppgjörsreglum sem taka á öllum þeim atriðum sem Lilja rekur í viðtalinu við Morgunblaðið. Langar mig að stikla á stóru í reglunum, en þær er auk að finna í heild í skrá sem fylgir með færslunni…
Read moreJátning óráðsíumanns og áhættufíkils
Ég fékk í kvöld einu sinni sem oftar þessa klassísku spurningu um áhættusækni þeirra sem tóku gengistryggð lán. Ég er búinn að fá þessa spurningu svo oft að ég hef ákveðið að hætta allri "afneitun" og viðurkenna syndir mínar og mistök. Fyrst er það spurningin, en henni var beint til mín á Eyjunni…
Read moreTilmæli um að neytendur njóti vafans - Nú eiga fjármálafyrirtækin næsta leik
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 2.7.2010. Efnisflokkur: Gengislánadómar, Stjórnvöld
Ég fagna ákvörðun talsmanns neytenda að höggva á þann hnút sem Seðlabanki og Fjármálaeftirlit hnýttu í vikunni. Tilmæli hans til fjármálafyrirtækja eru:
Read moreEfni: Tilmæli til SFF f.h. aðildarfyrirtækja að um að lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum sem vafi leikur á hvort falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar
Hvað sagði Hæstiréttur? - Tilmælin virka sem lög
Ég hef á undanförnum dögum heyrt í og rætt við nokkuð stóran hóp lögfræðinga. Með fáum undantekningum er menn sammála um að dómur Hæstaréttar hafi snúist um og takmarkast við þrjú atriði…
Read moreFattleysið mitt er með ólíkindum en það tók enda
Enn einn viðburðarríkur dagur er að kveldi kominn og enn einu sinni voru gengistryggð lán mál málanna. Ég er núna búinn að lesa margar fréttir og horfa á sjónvarpsfréttir á báðum stöðvum, hlusta á viðtöl á útvarpsstöðvum og hér á mbl.is. Þrátt fyrir þetta og vera talsvert vel inni í þessum málum, líklega betur en meðal Jóninn, þá er ég ekki að fatta allt þetta…
Read moreSeðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlit hvetja til lögbrota
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 30.6.2010. Efnisflokkur: Gengislánadómar, Stjórnvöld.
Ég trúi ekki mínum eigin augum. Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlit hvetja fjármálafyrirtæki til lögbrota og hafa með því rétt af neytendum.
Menn geta haft mismunandi sýn á niðurstöðu Hæstaréttar, en með tilmælum sínum eru Seðlabanki og FME að hvetja fjármálafyrirtæki til að brjóta gegn 36. gr. laga nr. 7/1936 og neytendaverndartilskipun 93/13/EBE
Read moreHúsfyllir á borgarafundi í Iðnó
Í kvöld fór fram borgarafundur í Iðnó um dóm Hæstaréttar um gengistrygginguna. Húsfyllir var og fjöldi fólk fylgdist auk þess með umræðunni utandyra. Frummælendur voru fjórir: Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, alþingismennirnir Pétur Blöndal og Lilja Mósesdóttir og loks Guðmundur Andir Skúlason frá Samtökum lánþega. Auk þeirra sátu við pallborðið Ragnar Baldursson lögmaður og síðan ég sjálfur fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna…
Read moreÚtþynnt stjórnlagaþing - Til hamingju sjálfstæðismenn að eyðileggja góða hugmynd
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 11.6.2010. Efnisflokkur: Stjórnlagaþing
Hún er alveg með ólíkindum hræðsla sjálfstæðismanna við almenning í landinu. Nú hefur þeim tekist að koma í veg fyrir að þjóðin geti fengið að kjósa til stjórnlagaþings til að setja sér nýja stjórnarskrá. Hvað er það sem þeir óttast? Að fólk hafi hugmyndir sem eru betri en þeirra eigin?
Read moreNei, afnám reglna fyrir fjármálakerfið hafði EKKERT með frjálshyggjuna að gera
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 29.6.2010. Efnisflokkur: Bankahrun
Þessi söguskýring Sambands ungra sjálfstæðismanna er ekki ný á nálinni ig hún er jafn röng núna og þegar hún hefur verið sett fram áður. Hrun efnahagskerfis heimsins og þar með Íslands ristir nefnilega inn í hjartarætur frjálshyggjunnar að einkaframtakinu sé best treystandi og það muni alltaf finna bestu leið til að láta hlutina ganga.
Read moreGrétar Vilmundarson - minningarorð
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 28.6.2010. Efnisflokkur: Minningargrein
Mig langar að minnast góðs manns, Grétars Vilmundarsonar, fyrrum félaga míns hjá Gróttu og fyrirmyndar í mörgu sem ég og fleiri strákar á mínum aldri gerðum varðandi íþróttaferli okkar. Genginn er einn þeirra sem ég tók mér til fyrirmyndar á mínum yngri árum.
Read moreVangaveltur og svör af þræði Láru Hönnu
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 28.6.2010. Efnisflokkur: Umræður
Ég hef í dag tekið þátt í umræðu á þræði Láru Hönnu á Eyjunni sem heitir Áhættufíkn og Borgarafundur. Langar mig að birta hluta af því sem ég segi þar hér fyrir neðan.
Fyrst vil ég þakka Láru Hönnu fyrir góðar samantektir sem yfirleitt eru betri en bestu fréttaskýringar fjölmiðlanna.
Read moreÞað voru þrír dómar í dag - Úrskurður í máli NBI gegn Þráni staðfestur
Athygli fólks hefur í dag verið á bílalánadómunum tveimur sem féllu í Hæstarétti, en ennþá stærri dómur féll líka í dag. Það var í máli NBI gegn Þráni ehf., þar sem NBI krafist gjaldþrotaskipta á Þráni ehf. Héraðsdómur hafnaði í úrskurði sínum 30. apríl sl. beiðni NBI og hélt ég að þeim úrskurði hefði ekki verið áfrýjað, enda komu upplýsingar um slíkt ekki fram á vefi Hæstaréttar…
Read moreUppgjör milli nýju og gömlu bankanna verða endurskoðuð 2012
Mér finnst einhvern veginn menn hafa gleymt því, að uppgjör milli nýju og gömlu bankanna eiga að koma til endurskoðunar 2012. Vissulega var hugmyndin að sú endurskoðun myndi leiða til þess að kröfuhafar fengju meira í sinn hlut, en hver segir að það sé meitlað í stein…
Read morePólitískar vangaveltur hjá ópólitískum manni
Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 27.6.2010. Efnisflokkur: Stjórnmál
Ég var að lesa færslu á Silfrinu hans Egils og umræðuna sem þar kom upp. Ég var byrjaður að skrifa athugasemd, en hún eiginlega þróaðist út í þessar vangaveltur hér. Þær spunnust út frá því að Guðbjörn Guðbjörnsson sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar samþykktar flokksins um að draga til baka ESB umsókn. Hér eru vangaveltur mínar:
Read moreEkki bendi á mig...
Menn draga upp alls konar skýringar og afsakanir fyrir því að bönkunum tókst í 9 ár að bjóða upp á gengistryggð lán þrátt fyrir mjög skýran bókstaf laganna um að eina verðtryggingin sem leyfð er í lánasamningum sé við vísitölu neysluverðs og hlutabréfavísitölur, innlendar eða erlendar eða sambland þeirra…
Read moreErtu að segja satt, Gylfi? Gögn Seðlabankans gefa annað í skyn.
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, hafa farið mikinn í fjölmiðlum í dag við að verja hin aðframkomnu fjármálafyrirtæki fyrir hinum illa dómi Hæstaréttar og óþrjótandi græðgi lántaka gengistryggðra lána fyrir réttlæti og sanngirni. Hefur verið með ólíkindum að hluta og lesa það sem frá þeim tveimur hefur komið…
Read more