Námskeið: Áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 29.4.2010.  Efnisflokkur:  Áhættustjórnun

Dagana 25. og 26. maí verða haldin á vegum Betri ákvörðunar ráðgjafaþjónustu Marinós G. Njálssonar tvö námskeið um  Áhættustjórnun og stjórnun rekstrarsamfellu.  Námskeiðin hefjast kl. 9.00 báða dagana og standa til um kl. 17.00.

MARKMIРnámskeiðanna er að kynna aðferðafræði við áhættumat annars vegar og stjórnun rekstrarsamfellu hins vegar og samspil áhættumats og stjórnunar rekstrarsamfellu.

Read more

Dropinn holar steininn - Íslandsbanki vill koma til mót við þá sem tóku bílalán

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 28.4.2010.  Efnisflokkur:  Skuldaúrræði, Nýir bankar

Vígin gefa sig eitt af öðrum.  Á Svipunni er frétt undir fyrirsögninni Bankar semja um myntkörfulán og þetta að stjórn Íslandsbanka vill koma til móts við þá sem tóku bílalán.  Vissulega kemur í hvorugri fréttinni fram hvað er gert og hvort það verður afturvirkt, en orð eru til alls fyrst.  Nú er bara að vona, að það taki ekki marga mánuði þar til næstu skref verða tekin.

Ég hef oft sagt, að bankarnir eiga að vinna með viðskiptavinum sínum að lausn vandans.  Það á að vera markmið allra fyrirtækja að viðhalda langtíma viðskiptasambandi við viðskiptavini sína.  Því fyrr sem hægt verður að leysa vanda heimila og fyrirtækja, því fyrr læknum við þjóðfélagið.  Lækningin verður að felast í því að ÖLL heimili og fyrirtæki séu eins virk og hægt er í því að skapa hagvöxt.  Þannig er staðan ekki í dag.

Ég skora enn og einu sinni á fjármálafyrirtækin að koma til viðræðna við hagsmunaaðila og samtök lántaka um leiðir út úr þessum vanda.  Ég trúi því ekki, að menn vilji bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar hvort heldur í bílalánamálunum eða málum sem farin eru í gang varðandi forsendubrest og önnur sem eru í undirbúningi um markaðsmisnotkun, fjárhagsglæpi og fleira eftir því.  Ég trúi því að til sé betri og fljótvirkari lausn og skora enn og aftur á fjármálafyrirtækin að koma að samningaborðinu.  Hagsmunasamtök heimilanna eru hvenær sem er búin til viðræðna.  Það er betra að semja en að fá yfir sig lög eða dóma.


Færslan var skrifuð við fréttina: Vilja koma til móts við þá sem tóku bílalán

Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með AGS

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 21.4.2010.  Efnisflokkur:  Hagsmunabarátta

Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með AGS í dag.  Var fundurinn að frumkvæði AGS.  Fórum við yfir málin án þess að reynt væri að komast að einhverri niðurstöðu.  Er það tilfinning mín, að vilji sé fyrir því hjá AGS að taka á skuldamálum heimilanna, en fólk verði að horfast í augu við að það fái ekki allan skaðann bættan.  Ekki að við hjá HH höfum nokkru sinni reiknað með því.

Read more

Aðvaranir Ólafs Ragnars fullkomlega réttmætar - Betra að vera viðbúinn eða gera ekkert

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 20.4.2010.  Efnisflokkur:  Náttúruvár, Áhættustjórnun

Nokkuð er rætt á fréttasíðum og í bloggheimi um viðtal Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við BBC í gærkvöldi.  Mjög margir gagnrýna Ólaf Ragnar fyrir að vara menn við því að Katla sé komin á tíma og gos í henni gæti orðið margfalt verra en gosið í Eyjafjallajökli.  Tala ýmsir um athyglissýki og vilja fá hann úr fjölmiðlum.

Read more

Áhugaverðar reglur: Reglugerð um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 19.4.2010.  Efnisflokkur:  Stjórnvöld, Bankahrun

Ég var að taka til á tölvunni minni og rakst á skjal sem ég hlóð niður fyrir um 30 mánuðum. [Var leiðrétt úr 40 mán.]  Það geymir reglugerð nr. 995 frá 30. október 2007 um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja.  Vissulega voru þessar reglur ekki settir fyrr en 30. október 2007 vegna heimildar í lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, til innleiðingar á tilskipun framkvæmdarstjórnar ESB 2006/73/EB.

Read more

Skuldir eigenda og stjórnenda bankanna námu fimmfaldri þjóðarframleiðslu. - Brostin siðgæðisvitund eigenda og stjórnenda bankanna

Það eru merkilegar tölur sem birtar eru í fréttum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins í dag.  Skuldir eigenda bankanna, fyrirtækja sem þeir áttu, stjórnenda bankanna og tengdra aðila við íslensku fjármálafyrirtæki sem féllu námu yfir 7.100 milljörðum kr.  Þetta er nærri því fimmföld þjóðarframleiðsla Íslands árið 2008 og örugglega meira en fimmföld þjóðarframleiðsla árið 2009…

Read more

Greinilega gott svigrúm til leiðréttinga lána

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 15.4.2010.  Efnisflokkur:  Nýir bankar

Það er greinilegt að Íslandsbanki hefur gott svigrúm til að leiðrétta stökkbreytt lán landsmanna.  Vonandi nýta þeir þennan góða hagnað til þess að gæta kjör og stöðu viðskiptavina sinna.

Annars sýnir þessi hagnaður, sem er alveg út úr kortinu, að bankinn er byrjaður að innheimta lán af meiri þunga, en kröfuhafar bankans gerðu ráð fyrir. 

Read more

Þörf á breytingu á lögum um lífeyrissjóði

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 15.4.2010.  Efnisflokkur:  Lífeyrissjóðir

Ákvörðun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.  Það er því ekki hægt að gagnrýna sjóðinn fyrir að fara að lögum.  Spurningin er aftur hvort breyta þurfi lögunum þannig að breyting á tryggingafræðilegu mati taki tillit til breytinga á eignum og skuldbindingum sjóðsins yfir lengri tíma.

Read more

Furðuleg villa í Skýrslunni

Ég tók eftir því í umfjöllun RÚV um Skýrsluna, að þar var ótrúleg rangfærsla um áhrif breytinga á húsnæðislánakerfi Íbúðalánasjóðs á íslenska hagkerfið.  Þarna létu menn greinilega mata sig af röngum upplýsingum og má spyrja sig af hverju það var gert.  Hvernig getur forstöðumaður hagfræðisviðs Seðlabanka Íslands komið með svona rugl eins og hann gerir, vekur furðu mína…

Read more

Allt að helmingur heimila nær ekki endum saman með tekjum

Í skjóli birtingar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis voru birtar ekki síður merkilegar upplýsingar í málstofu Seðlabanka Íslands.  Málstofan var undir heitinu "Hvernig hefur staða heimilanna breyst á undanförnum misserum og hverju fá aðgerðir í þágu heimila áorkað?".  Þar voru birtar niðurstöður rannsóknar tveggja hagfræðinga Seðlabankans, Karenar Á Vignisdóttur og Þorvarðar Tjörva Ólafssonar, á gögnum úr bankakerfinu, tekjuupplýsingar og fleira varðandi afkomu heimilanna…

Read more

Þrjú frumvörp um greiðsluaðlögun og umboðsmann skuldara

Lögð hafa verið fram þrjú frumvörp á Alþingi.  Eitt um breytingu á lögum um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði, annað er að nýjum lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga og þriðja frumvarpið er að lögum um umboðsmann skuldara.  Í öllum þessum frumvörpum felst mikil réttarbót fyrir lántaka, þó svo að þau séu vissulega þeim annmarka háð, að hvergi er gerð nokkur tilraun til að viðurkenna þann forsendubrest sem orðið hefur…

Read more

Verið að meðhöndla einkennin ekki sjúkdóminn

Ríkisstjórnin kynnti í dag það, sem kallar er "umfangsmiklar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna".  Ég hef á síðustu dögum fengið tvær kynningar á þessum aðgerðum, fyrst af hálfu félagsmálaráðherra á fund þverpólitísks starfshóps Alþingis um skuldavanda heimilanna og fyrirtækja og hins vegar á fundi með aðstoðarkonu félagsmálaráðherra…

Read more

Aðgerðir fyrir heimilin - endurbirt rúmlega árs gömul færsla

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 17.3.2010.  Efnisflokkur:  Hagsmunabarátta

Mig langar að endurbirta hluta færslu frá 2. febrúar 2009 til að sýna að í reynd hefur sáralítið breyst á þessum rúmum 13 mánuðum:

Ég vil byrja á því að fagna þeim ásetningi hinnar nýju ríkisstjórnar að stoppa nauðungarsölur á íbúðarhúsnæði næstu 6 mánuði.  Þetta er mikilvægt skref til að koma í veg fyrir að fjölskyldur verði sendar út á Guð og gaddinn.

Read more