Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 2.2.2012. Efnisflokkur: Skuldamál heimilanna
Hlustaði aðeins á óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi áðan. Forsætisráðherra er enn að berja hausinn upp við steininn. Hún segir að mikið sé búið að gera, en gleymir því, að allt er meira og minna gert á forsendum fjármálafyrirtækjanna.
Ég veit ekki hve margir átta sig á, að verðbólga frá janúar byrjun 2008 til dagsins í dag er 37,4%, en frá hruni til dagsins í dag 22,7%. Munar þarna 14,7%, sem er verðbólga frá byrjun janúar til hruns með uppsöfnunaráhrifum af síðari verðbólgu. Ríflega 1/3 af tjóninu varð fyrir hrun.
Myndin er ennþá verri, ef skoðuð er sveiflan á krónunni. Í töflunni hér fyrir neðan er gengi nokkurra gjaldmiðla í ársbyrjun 2008, 6. október 2008 og í dag.
Dagsetning | EUR | USD | CHF | JPY | GVT |
1.1.2008 | 91,65 | 62,32 | 56,46 | 0,5687 | 120,5 |
6.10.2008 | 172,355 | 127,455 | 111,28 | 1,2585 | 230,025 |
2.2.2012 | 161,795 | 123,19 | 134,195 | 1,6178 | 221,15 |
Breyting frá 1.1.08 | 76,5% | 97,7% | 137,7% | 184,5% | 83,5% |
Breyting frá 6.10.08 | -6,1% | -3,3% | 20,6% | 28,5% | -3,9% |
Taflan sýnir að hækkunin á gengi varð að langmestu leiti frá áramótum fram að hruni. Eftir hrun eru það bara jen og frankar sem eru að halda áfram að kvelja menn og hækkun frankans nær ekki einu sinni breytingum á vísitölu neysluverðs.
Meðan ekki er búið að lagfæra afleiðingarnar á efnahagshruninu, sem átti sér stað frá áramótum 2008 fram að því þegar neyðarlögin voru sett, þá er ekki búið að koma hlutunum í samt lag. Að fjármálafyrirtæki (þó þau séu ný) fái að stinga í vasann bara einhverri af þeirri hækkun skulda sem varð á þessu tímabili er staðfesting á því, að fjármálafyrirtæki eru hafin yfir lög. Þau mega setja heilt hagkerfi á hausinn og stinga afrakstrinum í eigin vasa! Þau mega stunda vafasöm viðskipti, sem líklegast stangast á við lög, en samt stinga hagnaðinum í vasann. Þau mega fella krónuna og skapa verðbólgu til að hækka kröfur sínar á saklausa lántaka og þannig stefna öllu í voða, en samt stinga hagnaðinum í vasann. Þau mega hunsa alla varúð, sýna gróft vanhæfi, svíkja, svindla, beita blekkingum og bjóða ólöglega þjónustu, en samt stinga hagnaðinum í vasann.
Meðan stjórnvöld líta svo á, að fjármálafyrirtækin séu löglegir eigendur þess fjár sem haft var af viðskiptavinum með þeim aðferðum sem lýst er að ofan, þá verður ekki friður í þjóðfélaginu. Traustið er farið og það mun taka mörg ár að byggja það upp aftur. Eitt skref í þá átt, er að unnið verði út frá skuldastöðu í upphafi árs 2008 og fundin út aðferð til að leiðrétta skuldir einstaklinga, heimila og fyrirtækja í samræmi við það. Hvort að lagt er 2,5% eða 4,0% árlega ofan á skuldastöðuna þá eða einhver önnur aðferð notuð, skiptir kannski ekki megin máli. Hins vegar er út í hött að fara í leiðréttingar sem miða við að tjónið frá áramótum fram að hruni verið ekki bætt. Það er út í hött að fjármálafyrirtæki sem voru þátttakendur í ruglinu (hvort heldur beint eða bara þáðu tekjurnar) eða voru stofnuð á rústum þeirra sem voru stærstu gerendurnir, fái að ráða hvernig leiðréttingin fari fram, hafi úrskurðarvald um líf og dauða fyrirtækja eða hvort fólk tapi eigum sínum, að ég tali nú ekki um, fái að hagnast um geðveikislegar háar upphæðir.
Í mínum huga er þetta ekki ólíkt því að þjófagengi hafi brotist inn á heimili landsmanna og stolið þaðan öllu steini léttara. Það sem þau hirtu ekki tóku minni gengi. Nú þegar lögreglan nappaði gengin, stór og smá, þá fá þau að velja hverju er skilað og hverju þau eða þýfiskaupendur þeirra fá að halda eftir. Síðan þurfa heimilin að greiða fyrir allar viðgerðir að auki.