Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 5.5.2011. Efnisflokkur: Svindl og svik, Bankahrun
Í janúar birti ég hér færslu undir heitinu Almenningur hafður að ginningarfíflum - Bankarnir lifa en almenningur tapar öllu. Þar hélt ég því fram að stofnfjáraukningar tveggja sparisjóða, Sparisjóðs Keflavíkur og Sparisjóðs Svarfdælinga, hafi verið byggðar á sandi, þar sem verðmætaaukning í hlutabréfeign sjóðanna hafi verið blekking ein. Í færslunni segi ég m.a.:
Sparisjóður Keflavíkur gaf út nýtt stofnfé og lánaði stofnfjáreigendum gengisbundin lán. Stofnfjáraukningin var byggð á eignarhlut sjóðsins í Kistu ehf., en félagið hélt utan um eignarhluta sparisjóðanna í Exista sem síðan var stærsti hluthafinn í Kaupþingi. Komið hefur í ljós að virði hlutabréfa í Kaupþingi var haldið uppi með grófum hætti og þróaðist í þveröfuga átt miðað við t.d. skuldatryggingaálag bankans.
Og síðar:
Hlutabréfamarkaðurinn var náttúrulega algjör brandari, þar sem verðmat þeirra byggði á því fjármagni sem þurfti til að greiða upp skuldir fyrri eigenda, en ekki hvers virði hlutabréfin voru. Eftir því sem skuldir eigenda hlutabréfanna jukust, þá hækkað verð hlutabréfanna. Oftast var það síðan lánveitandinn sem fékk allt kaupverð bréfanna í hendur enda snerist fléttan um að fyrri eigandi hlutabréfanna gerði upp skuldir við lánveitandann. Fyrir þetta liðu aðrir kaupendur hlutabréfa. Einnig myndaðist falskur hagnaður hjá öðrum hlutabréfaeigendum, svo sem lífeyrissjóðunum.
Frétt RÚV um skrípaleikinn varðandi viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi staðfestir þessa lýsingu mína. Ekkert var raunverulegt, allt var gert til að falsa raunverulega stöðu.
Ég verð að segja, að þetta er hætt að koma mér á óvart. Ég bíð bara eftir því, að upp komist að stjórnendur stórs fjármálafyrirtæki hafi stútað einhverjum og komist upp með það. Mér sýnist það vera það eina sem geti toppað hrokann og óheiðarleikann sem var í gangi.
Annars get ég ekki sagt annað en að ýmislegt í kaupum Samherja á Akureyrarhluta Brims í gær veki upp spurningar. Samherji borgaði 3,4 ma. kr. og fékk 11 ma.kr. að láni frá Landsbankanum. Samkvæmt fréttum, þá runnu þessir 3,4 ma. kr. til að greiða upp skuld Brims í Íslandsbanka, vafalaust lán sem veitt var þegar Þorsteinn Már var stjórnarformaður bankans, og 11 ma. kr. lánið fór til að gera upp skuldir Brims við Landsbankann! Lán Landsbankans til Samherja var stillt á 11 ma. kr. svo Brim gæti gert upp við bankann. Ákaflega heppilegt fyrir Landsbankann, ekki satt. Kaupverðið var stillt af svo bankarnir fengju sitt.
Ég bíð bara eftir því að í ljós komi að Samherji hafi fengið einhverja afbrigðilega fyrirgreiðslu hjá hvorum banka um sig. Því miður er traust mitt á bankakerfinu ekki meira en þetta. Sagt er að Samherji fjármagni þessa 3,4 ma.kr. með sölu eigna erlendis. Ætli þeir hafi fengið söluverðið yfirfært á aflandsgengi? Tek það fram, að ég hef enga ástæðu til að halda að hér sé óhreint mjöl í pokahorninu, en trú mín á heiðarlegum viðskiptum er bara ekki meiri en þetta.
Færslan var skrifuð við fréttina: Stórfelld sýndarviðskipti