Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 5.3.2011. Efnisflokkur: Nýir bankar, Áhættustjórnun
Ég skil ekki hvað mönnum gengur til með þessu. Hafi þurft að sameina SpKef einhverju öðru fjármálafyrirtæki, þá var leiðin ekki að stækka fyrirtæki sem er of stórt fyrir.
Með neyðarlögunum og Icesave samningum hafa tvær ríkisstjórnir Íslands gefið fordæmi um hvernig innstæðutryggingum verður háttað í framtíðinni, þ.e. lög eiga ekki að gilda heldur geðþótta ákvörðun ríkisstjórnar hvers tíma. Það ákvæði neyðarlaganna að færa innstæður til í forgangsröð krafna í þrotabú hrunbankanna var ákaflega illa útfært. Mönnum sást því miður ekki fyrir í asaganginum og skattgreiðendur fengu í staðinn reikning upp á fleiri hundruð milljarða. Icesave deilan væri fyrir löngu leyst, ef þessi 100% trygging innstæðna hefði ekki falist í neyðarlögunum. Hér fyrir neðan sést hver staða innlána var í bankakerfinu 30/9/2008 og í nýju bankakerfi annars vegar 31/10/2008 og hins vegar 31/1/2011:
sep.08 |
okt.08 |
jan.11 |
|
Innlán, alls |
3.123.293 |
1.645.049 |
1.451.518 |
Innlendir aðilar, alls |
1.413.423 |
1.555.537 |
1.414.356 |
Ríkissjóður og ríkisstofnanir |
20.112 |
32.696 |
23.030 |
Sveitarfélög og -stofnanir |
21.576 |
34.096 |
24.895 |
Fjármálafyrirtæki, önnur en bankar |
264.380 |
245.052 |
243.280 |
þ.a. Lífeyrissjóðir |
48.163 |
140.994 |
149.756 |
þ.a. Vátryggingarfélög |
24.359 |
15.672 |
13.179 |
þ.a. ýmis lánafyrirtæki |
18.259 |
22.860 |
46.585 |
þ.a. verðbréfa- og fjárfestingasjóðir |
137.975 |
57.104 |
27.623 |
Fyrirtæki |
264.877 |
305.025 |
333.593 |
Landbúnaður |
2.082 |
2.968 |
3.156 |
Fiskveiðar |
17.290 |
18.491 |
17.102 |
Námugröftur og iðnaður |
18.952 |
24.076 |
14.829 |
Veitur |
10.325 |
11.860 |
13.198 |
Byggingastarfsemi |
19.352 |
21.133 |
16.210 |
Verslun |
32.952 |
36.170 |
38.830 |
Samgöngur og flutn. |
5.661 |
6.623 |
12.889 |
Þjónusta |
158.264 |
183.704 |
202.015 |
Eignarhaldsfélög |
143.880 |
169.768 |
116.628 |
Heimili |
660.462 |
715.519 |
635.764 |
Óflokkað |
38.135 |
53.382 |
37.166 |
Erlendir aðilar, alls |
1.709.870 |
89.512 |
37.162 |
Heilum 1.413 milljörðum kr. var bjargað á sínum tíma innanlands og það er nokkurn veginn sama upphæð og er í innlánum í dag. Við sjáum líka að stór hluti var vegna lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingasjóða, eignarhaldsfélaga og þjónustufyrirtækja eða alls 488 milljarðar kr. (hafa skal í huga að lífeyrissjóðirnir áttu inn í verðbréfa- og fjárfestingasjóðum og fluttu eignir sínar á innstæðureikninga). Ef undanþágur tilskipunar ESB um innstæðutryggingar hefðu verið virkar við hrun bankanna, hefði þetta að mestu tapast. Vissulega hefði það verið harkalegt fyrir eigendur fjárins, en í stað voru skattgreiðendur látnir taka á sig líklegast á fimmta hundrað milljarða við endurreisn bankanna og vegna krafna sem Seðlabanki Íslands fékk ekki greiddar, en hefði hugsanlega geta fengið greiddar. Þessu til viðbótar er Icesave. Gleymum því aldrei, að ef þak hefði verið sett á yfirfærslu innstæðna í neyðarlögunum, þá værum við ekki að kljást við Icesave.
Frumvarp um nýtt innstæðutryggingakerfi sem lagt var fram síðast liðið sumar benti til þess að á þessu yrði engin breyting. Vanmáttugur tryggingasjóður verður búinn til. Sjóður sem getur staðið undir skuldbindingum, ef lítil fjármálastofnun fellur en ríkið og þar með skattgreiðendur verða að hlaupa undir bagga, ef stór fjármálastofnun fellur. Vissulega hafa menn reiknað út að sjóðurinn mun geta staðið undir greiðslum eftir að hið fallna fjármálafyrirtæki hefur fengið tækifæri til að vinna úr eignum sínum. Málið er að innstæðutryggingasjóður fær bara í mesta lagi 6 mánuði til að greiða út tryggðar innstæður. Og það eru ekki 20.887 EUR sem verða tryggðar. Nei, það verða 100.000 EUR sem verða tryggðar.
Með sameiningu SpKef við NBI ehf., þá er búið að stækka innstæðugrunn NBI umfram það sem áður var. Þar með er búið að auka áhættu skattgreiðenda vegna starfsemi NBI. Ég er ekki að spá falli bankans, en hann hefur ekki sannað að hann muni lifa af. Látum NBI fyrst sanna að hann eigi tilvistargrundvöll áður en áhætta skattgreiðenda er aukin.
Það getur verið að mönnum hafi ekki fundist aðrir möguleikar í stöðunni, en þá krefst ég þess, sem skattgreiðandi, að NBI ehf. taki auknar tryggingar hjá sjálfstæðu erlendu tryggingafélagi til að verja mig, sem skattgreiðanda, fyrir því að fá reikninginn í höfuðið. Ég treysti því ekki að allir stóru bankarnir lifi af þá ólgu sem er á fjármálamörkuðum og þá óvissu sem er varðandi stöðu útlána þeirra. Köllum þetta, að brennt barn forðist eldinn. Ég vil raunar ganga lengra og takmarka upphæð þeirra innstæðna sem fjármálafyrirtæki geta tekið við og fallið undir innstæðutryggingar. Þessi takmörkun verði í gangi næstu 5 árin eða þar til hinn nýi tryggingasjóður innstæðueigenda hefur náð nægum styrk. Jafnframt er löngu orðið tímabært að fjármálafyrirtæki starfi á eigin ábyrgð og á ábyrgð eigenda sinna. Ég sem skattgreiðandi á ekki að standa í ábyrgð fyrir illreknum fjármálafyrirtækjum. Þau eiga að vera með fullnægjandi tryggingar vegna áfalla í rekstri, þau eiga að vera með viðhlítandi ráðstafanir til að tryggja samfeldni rekstrarins og þau eiga að vera nauðsynlegar viðbragðsáætlanir til að geta brugðist við fari eitthvað úrskeiðis. Úps, það eru gerðar kröfur um þetta í lögum og reglum, en samt hrundu fjármálafyrirtækin eins og flugur þegar á reyndi. Já, það er ekki nóg að gera kröfur FME, regluverðir og innri og ytri endurskoðendur verða að hafa bein í nefinu til að ganga eftir því að þetta sé til staðar. Sé þetta ekki til staðar, þá er ég boðinn og búinn til að veita fjármálafyrirtækjum ráðgjöf um hvernig staðið skuli að verki.
Færslan var skrifuð við fréttina: Spkef sameinast Landsbankanum