Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 4.2.2010. Efnisflokkur: Stjórnvöld, Skuldamál heimilanna
Það var forvitnilegt að fylgjast með umræðu á Alþingi um skuldavanda heimilanna. Ég ætla ekki að fara út í langt mál um það sem þar kom fram, en eitt verð ég að fjalla um.
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, og fleiri var tíðrætt um í lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins væri verið að taka á greiðslu- og skuldastöðu heimilanna. Vandinn er að þetta er röng fullyrðing. Lögin taka ýmist á greiðsluvandanum eða skuldavandanum. Ekkert úrræði í lögunum tekur á hvorutveggja nema fyrir algjöra tilviljun.
Það er röng hugsun að stilla skuldir af miðað við eignir. Eignastaða er síbreytileg. Markaðsvirði fasteigna á höfuðborgarsvæðinu er í frjálsu falli. Viðskiptavinur sem fær lán sín færð niður í 110% af markaðsvirði í dag, situr uppi með 150% veðsetningu eftir nokkra mánuði. Á viðkomandi þá að biðja aftur um sértæka skuldaaðlögun? Skuldir þarf að leiðrétta án tillits til eignastöðu, þannig að ALLIR fái hlutfallslega sömu leiðréttingu á fasteignalánum sínum. (Vissulega á þetta líka að gilda um bílalán. Þetta á EKKI að gilda um fjárfestingalán vegna verðbréfaviðskipta.)
Hagsmunasamtök heimilanna eru að vinna að tillögum, sem samtökin vona að geti leitt til sáttar í þjóðfélaginu. Tillögurnar verða vonandi kynntar fyrir lok mánaðarins, en við munum taka okkur þann tíma sem við þurfum til að útfæra þær þannig að almenn sátt geti náðst um þær.
Hafa skal í huga, að það er sama hvaða úrræði er komið með, alltaf verða einhverjir sem munu fara í nauðungarsölu eða gjaldþrot. Þess vegna er nauðsynlegt að gera þau úrræði manneskjulegri og réttlátari. Í dag eru þessi úrræði undantekningarlaust kröfuhafa miðuð. Við þurfum að leita til Norðurlanda um nýjar fyrirmyndir. Við þurfum að setja okkur í spor þolenda og spyrja okkur hvernig myndum við vilja hafa þetta, ef við værum að ganga í gegn um þessa raun. Það er þetta gamla góða: "Það sem þér viljið að mennirnir gjöri yður, skulið þér og þeim gjöra." Ég held að fjármálafyrirtæki ættu að hafa þessa reglu í huga í samskiptum sínum við viðskiptavini sína. Það er nefnilega aldrei að vita hvenær hlutverk snúast.