Neytendastofa skiptir sér ekki af því að ólögleg afurð sé í boði!

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 10.2.2010.  Efnisflokkur:  Stjórnvöld

Neytendastofa birtir á vefsvæði sínu úrskurð í kvörtun vegna gengistryggðs bílaláns frá Avant.  Ég verð að viðurkenna að ég nenni ekki að hafa mörg orð um þennan úrskurð.  Skoðun stofunnar fellst í því að spyrja og fá svör.  Sjálfstæð rannsókn er ekki fyrir hendi, svo sem að kalla eftir frumritum pappírsgagna eða sönnunargögnum af tölvu Avant.  Ekki leitað upplýsinga frá milligöngumanni lánveitingarinnar og því ekki sannreynt að viðkomandi hafi veitt lántaka þær upplýsingar sem honum ber skylda að veita.

Verst finnst mér í úrskurðinum að Neytendastofa fríar sig ábyrgð á því að taka afstöðu til þess hvort vara sem fyrirtæki er að veita á neytendamarkaði sé lögleg vegna þess að hún er fjármálaafurð!  Ef það er ekki hlutverk Neytendastofu að verja rétt neytenda gagnvart ólöglegum afurðum, hver á þá að verja neytendur?  Svo merkilegt sem það er, þá telur talsmaður neytenda að þessi afurð, sem Neytendastofa telur ekki í sínum verkahring að taka afstöðu til, sé kolólögleg.  (Þessir tveir aðilar samnýta húsnæði.)

Ef afurðin sem um ræðir hefði verið raftæki eða litarefni, þá hefði loppa Neytendastofu klappað á seljandann og sagt:  Suss, þetta máttu ekki.  En af því að þetta er fjármálaafurð, þá þorir Neytendastofa ekki að hafa skoðun, enda virðist loppa hennar eiga lítið í hramm fjármálafyrirtækjanna.  Hún meira að segja hunsar íslensk lög um að fjármálasamningur milli íslenskra aðila sé íslenskur og því eigi gjörningurinn að fara fram í íslenskri mynt. Mér finnst sorglegt að Neytendastofa telur sig ekki hafa meiri rannsóknarskyldu í þessu máli.