Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 15.10.2010. Efnisflokkur: Umræðan
Ég er kominn á þá skoðun að Jóhanna og fjármálafyrirtækin ætli bara að bjóða fólki þrjár leiðir út úr kreppunni. Allar bjóða þær svona "one way ticket" og ég er ekki að tala um greiðsluaðlögun, sértæka skuldaaðlögun og gjaldþrot. Nei, þær eru ódýrari, þó þær séu ekki sársaukaminni. Flestir sem velja þessar leiðir ættu þó að geta komið undir sig fótunum og boðið börnum sínum bjarta framtíð.
Svo ég haldi lesendum ekki lengur í ofvænni, þá eru leiðirnar eftirfarandi:
1. Icelandair og búslóðin fer með skipi
2. Iceland Express og búslóðin fer með skipi
3. Norræna og búslóðin fer með í ferðinni.
Lykla að bílum og húsum má skilja eftir á skrifstofu forsætisráðherra. Öryggisvörðurinn í móttökunni tekur á móti þeim.
Ég verð að viðurkenna, að ég er farinn að óttast að þetta sé eina leiðin til að komast í eðlilegt umhverfi. Því miður er spillingin og vald valdablokkanna hér á landi svo mikið að ekki verður hróflað við núverandi kerfi. Um leið og hinir mætustu aðilar komast í tæri við valdablokkina (sem á ekkert skylt við pólitíkina) þá umhverfast menn. Sorgleg staðreynd.
Færslan var skrifuð við fréttina: Almenn niðurfærsla skulda ólíkleg
Viðbót úr athugasemd:
Takk fyrir mjög góð viðbrögð.
Þessi færsla er kannski byggð á gömlum brandara, en eftir viðbrögð ráðamanna í fréttum í gær, grátkór aðila vinnumarkaðarins, undanbárur lífeyrissjóðanna og framkomu stjórnenda bankanna á fundinum á miðvikudaginn, þá varð mér ljóst að það er ekki ætlunin að leysa skuldavandafólks nema með því að gera eigur þess fyrst upptækar. Svindlið, spillingin og lögbrotin verða látin óátalin vegna þess að það er mikilvægara að verja kerfið en að vinna að réttlæti. Með hverju heldur þetta fólk að þetta endi? Að fólk fallist í faðma og elski hvert annað um aldur og ævi? Nei, þetta endar á uppreisn almennings.
Ég veit um tvo eða þrjá aðila sem eru að undirbúa opnun nýs banka, nokkrir hópar eru að vinna að stofnun nýs lífeyrissjóðs, nýtt verkalýðsfélag á Reykjavíkursvæðinu er í bígerð. Taki menn ekki sönsum, þá verður valdið einfaldlega fært frá þeim.
Í umræðunni undanfarna daga, þá hefur úrtölum mönnum verið tíðrætt um kostnað og þetta sé ekki hægt. Óskapast er yfir því að einhverjir fái eitthvað sem þeir þurfi ekki. Það er tvennt sem er aldrei rætt hjá valdaliðinu: Hver er kostnaðurinn af því að fara ekki þessa leið og veltuaukningin sem verður í þjóðfélaginu ef þessi leið er farin. Þeir vita nefnilega svörin, en þar sem þeir eru að vinna að eigin skammtíma hagsmunum, en ekki hagsmunum fjöldans, þá ræða þeir ekki kosti tillögu Hagsmunasamtaka heimilanna.
Stjórnarmaður hjá HH hefur reiknað út að kostnaðurinn af því að halda áfram á sömu braut muni kosta þjóðfélagið nálægt 2.000 milljörðum króna eða tífalda þá upphæð af lofti sem samtökin leggja til að verð látið leka út. Höfum í huga að HH er bara að biðja um leiðréttingu tæp þrjú ár aftur í tímann. Við viljum fá til baka innan við 200 milljarða af þeim ríflega 600 milljörðum sem við tókum ekki að láni, en vanhæft fjármálakerfi hefur með hjálp vanhæfrar efnahagsstjórnunar getað bætt á lánin okkar í formi verðbóta. Já, verðtryggð lán heimilanna hafa hækkað um yfir 600 milljarða frá aldamótum vegna verðtryggingar. Vissulega hækkuðu launin okkar líka, a.m.k. sumra, og verð húsnæðis, þó það hafi dalað aftur. Okkur er sagt að þetta jafni sig á einhverjum árum og allt verði gott þá.
Það er bull. Þegar kemur að því að þetta jafni sig, þá verða margar góðar stundir glataðar. Lífskjör hafa versnað til langframa fyrir stóran hóp einstaklinga, tugþúsundir hafa flutt úr landi og fjöldinn allur hafa tekið eigið líf. Við getum ekki beðið vegna allra þeirra viðkvæmu sála sem eru í samfélaginu. Við viljum ekki bíða, þar sem við vitum að loforð um framtíðina eiga til að breytast. Loks þá vil ég ekki bíða, vegna þess að ég treysi ekki því að bankarnir og lífeyrissjóðirnir nái að standa af sér storminn sem enn geysar. Og þegar kemur að því að stóri skellurinn kemur, þá vil ég vera búinn að fá leiðréttingu minna mála. Einn fugl í hendi er betra en tættur vængur í skógi.