Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 29.9.2010. Efnisflokkur: AGS, Skuldamál heimilanna
Merkileg eru þau ummæli Murilo Portugal að
Aðgerðir til að mæta skuldavanda heimila og fyrirtækja hafi reynst gagnlegar
Ég velti því fyrir mér hver laug þessu að honum eða teljast það gagnlegar aðgerðir að helmingur fyrirtækja landsins eru annað hvort gjaldþrota eða á leið gjaldþrot og þúsundir heimila eru annað hvort búin a missa húsnæðið sitt eða á leiðinni að missa það. Ef það síðara er sú mælistika sem AGS notar, þá bíð ég ekki mikið í hagstjórnarsnilldina á þeim bæ.
Það er gott og blessað að þessi niðurstaða skuli koma á þessum degi. Alþingi logar í illdeilum og ekkert mun fara þar í gegn á næstu mánuðum. Íslenskir neytendur hafa verið sviptir neytendavernd og lögbrjótar hafa fengið samþykki dómstóla fyrir því að lögbrot borga sig. Fjármálakerfið er alvaldur Íslands og þó það kveiki í öllum fasteignum landsmanna, þá munu dómstólar örugglega finna glufu í lögunum til að kenna lántökum um brunann og gera þeim að greiða skaðabætur.
Mér finnst að Murilo Portugal ætti að rifja upp orð Marks Flanagans eftir fyrstu endurskoðun AGS, þegar hann sagði:
And finally in the debt restructuring area I just want to highlight that now we have managed to mark down loans to appropriate level in the banks' books, this has to be translated into appropriate debt relief to viable borrowers.
Í huga almennings eru þessir "viable borrowers" ekki Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir hrunverjar. Nei, þetta eru óþekktir eigendur fyrirtækja sem hafa reynt að stinga sér í gegn um öldu markaðsmisnotkunar, svika og pretta, en þar sem þessir aðilar eru ekki nógu þekkt andlit, þá er besta mál að fórna þeim. Þeir sem ekki eru þekktir gleymast hvort eð er fljótt.
Skilur AGS ekki að ástandið hér á landi er grafalvarlegt. Í gær var ég að beygja inn á Hringbraut af brúnni yfir Bústaðarveg/Snorrabraut. Þar var umferðartappi vegna slyss. Þegar nær kom sá ég að snyrtilega klædd kona lá hreyfingarlaus á götunni. Ég veit ekki hvað gerðist, en ekki var að sjá að árekstur hafi orðið. Þrír bílar voru í röð en engin virtist skemmdur. Það hvarflaði að mér að hún hefði stokkið, þar sem ekkert var minnst á þetta í blöðunum í morgun. A.m.k. sá ég hvergi minnst á árekstur á Hringbraut þar sem farþegi slasaðist.
Ég held svo sem að AGS skilji ástandið hérna mjög vel. Það er bara ekki þeirra hlutverk að að taka þær ákvarðanir sem þarf að taka til að laga stöðuna hérna. Það er hlutverk stjórnvalda og þau þora ekki.
Færslan var skrifuð við fréttina: „Mikill árangur hefur náðst“