Af sjálfstæði greiningardeildar Glitnis

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 3.11.2010.  Efnisflokkur:  Bankahrun

Á visir.is er frétt um þá greiningu greiningardeildar Glitnis frá 11. október 2007 að stöðutaka í erlendri mynt fari "að verða vænlegur kostur".  Fréttastofa Stöðvar 2 leitaði til Íslandsbanka út af þessu og greinir frá viðbrögðum bankans með eftirfarandi hætti:

Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa fékk í dag frá greiningardeild Íslandsbanka er ekki hægt að fallast á að með þessu hafi bankinn sjálfur hvatt til þess að tekin yrði staða gegn krónunni. Greiningardeildin hafi verið sjálfstæð og spár og ráðleggingar hennar hafi verið settar fram með fyrirvara um að þær ákvarðanir sem teknar væru á grundvelli hennar væru á ábyrgð þess sem tæki þær. 

Við þetta er rétt að gera athugasemd:

1.  FME hefur sett út á að aðskilnaður greiningardeildarinnar frá annarri starfsemi hafi verið ónógur.

2.  Greiningardeildin var, samkvæmt skipuriti, hluti af markaðsviðskiptasviði Glitnis, en það svið innihélt samkvæmt upplýsingum í Þjóðhagsspá Glitnis 2008 - 2011, sem gefin var út í september 2008, eftirfarandi deildir (heiti eru á ensku eins og þau eru orðuð í Þjóðahagsspánni):

  • Markets Head Office

  • Markets FX Managed Accounts 

  • Markets Securities Brokerage

  • Markets Derivatives

  • Markets FX Sales

  • Research (þ.e. greiningardeild)

  • Proprietary Trading

Nú vil ég eftirláta lesendum að ákvarða hvort greiningardeildin hafi verið algjörlega sjálfstæð eining eða ekki.  Hvernig getur deild sem er hluti af markaðsviðskiptasviði talist sjálfstæð?  Spyr sá sem ekki veit.  Starfsfólk greiningardeildar vann við hliðina á því fólki sem sá um ráðgjöf á sviði gjaldeyrismála.  Eigum við að trúa því, að spárnar hafi ekki verið hluti af beinni markaðsaðgerð.  Því miður, þá trúi ég því ekki.  Þetta fyrirkomulag, að hafa greiningardeild sem hluta af markaðsviðskiptasviði, er í mínum huga ótrúlegt klúður af hálfu bankans og gerir það að verkum að ekki er hægt að líta á "spárnar" sem neitt annað en markaðsstarfsemi.

Höfum svo í huga að þessi sama "greiningardeild" kom með ótrúlega "spá" um gengisþróun árið 2008.  Í maí 2008, þá "spáði" deildin að meðalgengisvísitala ársins yrði um 142 og lokagengisvísistalan yrði 135.  Annað hvort var "greiningardeildin" með bundið fyrir bæði augu, bæði eyru og munn og fálmaði um í myrkri eða hún var djúpt sokkinn í þann blekkingarleik sem var í gangi.  Annað hvort var hún skipuð fólki sem hafði ekki hundsvit á því sem var að gerast í hagkerfinu eða það tók virkan þátt í því að draga fólk á ansaeyrunum.  Mér er svo sem sama hvort er.  Ég held a.m.k. ekki að það sé þess virði að flagga því í starfsferilskrá að hafa starfað í greiningardeildinni árið 2008.  Það ótrúlega er náttúrulega það, að margir sem unnu að því að ljúga að fólki árið 2008, vinna fyrir hinn "nýja" banka.