Heimsókn sendinefndar AGS: Lækkun skulda og greiðslubyrði lántaka

Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 1.12.2009.

Mig langar til að vekja athygli á frétt sem birtist í hádegisfréttum RÚV án þess að aðrir fjölmiðlar hafi tekið hana upp.  Fréttin er um heimsókn sendinefndar AGS, en hún kemur til landsins í dag.  Annars er fréttin sem hér segir:

Sendinefnd AGS til landsins

Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kemur til Íslands í dag til viðræðna við stjórnvöld um aðra endurskoðun á lánveitingu sjóðsins til landsins. Áhersla verður á hvernig gera megi bankana arðvænlega á ný og hvernig lækka megi skuldir og greiðslubyrði lánþega.

Fulltrúar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, undir forystu Marks Flanagans, yfirmanns sendinefndar sjóðsins á Íslandi, koma til landsins í dag til að ræða við fjölmarga fulltrúa stjórnvalda, opinberra stofnana og fjármálafyrirtækja. Fundað verður um aðra endurskoðun á lánveitingu sjóðsins til Íslands næsta hálfa mánuðinn. Í yfirlýsingu sjóðsins segir að helst verði rætt um hvernig endurreisn íslenska bankakerfisins hafi miðað og almennt um fjárhagslegan stöðugleika. Spurningum fjölmiðla verður síðan svarað í lok heimsóknarinnar.

Þegar efnahagsáætlun Íslendinga var samþykkt á fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í lok október sagði Mark Flanagan í viðtali að í næstu endurskoðun lánveitingarinnar yrði rætt um það verk sem enn væri óunnið í endurskipulagningu á rekstri bankanna þannig að þeir gætu skilað hagnaði á ný. Einnig yrði áhersla lögð á að nú þegar tekist hefði að lækka lánsfjárhæðir niður í hæfilegt hlutfall í bókhaldi bankanna yrði það að skila sér til lánþega með lækkun skulda og greiðslubyrði. Það yrði allt til umfjöllunar í endurskoðuninni.

Það sem mig langar sérstaklega til að vekja athygli á eru feitletruðu setningahlutarnir að ofan.  Þetta er í mínum huga svo sem ekkert nýtt, þar sem Mark Flanagan sagði þetta í viðtali 27. október og bloggaði ég um það tvisvar, þ.e. Hvað þýðir "debt relief to viable borrowers"? og Fyrirspurn mín til fulltrúa AGS um "debt relief to viable borrowers".  En nú á sem sagt að fara í verkið.

Eins og kom fram í skýrslu AGS í byrjun nóvember, þá er gert ráð fyrir því, að lánastofnanir þurfi að fara í varúðarfærslu upp á um 600 milljarða vegna hugsanlegra tapaðra útlána og framtíðartekna af þeim útlánum.  Hagsmunasamtök heimilanna hafa sett fram kröfur um að gengistryggðum lánum verði breytt í verðtryggð lán frá lántökudegi og síðan verði verðbætur allra verðtryggðra lána (og þar með einnig lána sem áður voru gengistryggð) takmarkaðar við 4% á ári frá 1. janúar 2008.  Samtökin telja þetta vera sanngjarna og réttláta lausn á skulda- og greiðsluvanda heimilanna, auk þess reynist kostnaðurinn við hana mjög viðráðanlegur miðað við þá 600 milljarða sem áður voru nefndir.  Samkvæmt mati samtakanna er kostnaðurinn núna áætlaður um 260 milljarðar, en hækkar vissulega með hverjum deginum.

Það hefur lengi verið skoðun Hagsmunasamtaka heimilanna, að besta leiðin til að lækka greiðslubyrði heimilanna er að lækka höfuðstól lánanna.  Á þessari síðu hefur margoft verið færð rök fyrir því.  Á undanförnum vikum hef ég haft tækifæri til að ræða þessi mál við ýmsa málsmetandi einstaklinga, m.a. menn sem þekkja vel til innan bankakerfisins.  Það er nokkuð samdóma álit allra þessara aðila, að tillögu Hagsmunasamtaka heimilanna er besta, sanngjarnasta og réttlátasta leiðin til að greiða úr þeim vanda sem lánveitendur og lántakar eru að kljást við vegna skulda heimilanna.  Ég hef jafnan hvatt þessa aðila til að skjótast fram á ritvöllinn og koma þessari skoðun sinni opinberlega á framfæri, en því miður ekki haft erindi sem erfiði með það.

Það er staðreynd, að sífellt fleiri eru að lenda í alvarlegum vanda.  Úrræði ríkisstjórnarinnar og fjármálafyrirtækja eru ekki að leysa vanda þessa hóps.  Ef eitthvað er, eru úrræði að auka vandann og koma fólki á vonarvöl.  Staðreyndir málsins eru að ákveðinn hluti fjármálafyrirtækja landsins og eigendur a.m.k. sumra þeirra hafa unnið markvisst á undanförnum árum gegn almennum lántökum.  Það er því út í hött, að lántakar eigi að líða fyrir afglöp þessara aðila, eins og stjórnvöld hafa ákveðið að eigi að gera.

Það var brotist inn til okkar og við viljum að þýfinu sé skilað.