Færslan var fyrst birt á Moggabloggi höfundar 24.7.2010. Efnisflokkur: Gengistrygging, Dómstólar
Sú ákvörðun dómara að bæta lögbrjótum um "forsendubrest" sem hlaust af því að lögbrot þeirra komst upp fjórfaldar ekki bara vextina. Nei, hann gerir gott betur. Sá lántaki sem tók 20 ára lán um mitt ár 2006 til jafns í JPY og CHF og hefur staðið í skilum allan tímann, þarf að greiða lánveitanda sínum 54% til viðbótar við það sem hann greiddi samkvæmt gengistryggingarákvæðinu. Þetta er veruleikinn, eins ískaldur og hann gerist. Útreikninga á þessu er að finna í færslunni Dómur héraðsdóms mun fjölga gjaldþrotum einstaklinga og auka óstöðugleika í hagkerfinu. Það getur vel verið að á lánstímanum jafnist þetta út, en við höfum nú séð hvað Seðlabankanum hefur farist vel úr hendi efnahagsstjórnin hingað til og því er það ekki fugl í hendi. Nei, það sem er í hendi er að skilvís greiðandi þarf að bæta allt að 54% við skilvísar greiðslur sínar. Ætli að hann þurfi að greiða dráttarvexti líka?
Færslan var skrifuð við fréttina: Dómurinn fjórfaldar vextina
Viðbót:
Fréttin sem tengt er við, er mjög áhugaverð og mæli ég með að hún sé lesin.